Nú sér maður hverja pólitísku hýenuna á fætur annarri skríða inn í dagsljósið vegna lagatæknilegrar túlkunar á því hvort réttlætanlegt sé að stöðva atvinnustarfsemi sem rekin hefur verið í trássi við lög um dýravelferð. Þetta er ágætis hugleiðing um málið.
Ef til dæmis ég færi í hreindýraveiði með sleggju og væri smám saman að murka lífið úr dýrinu þá væri það lögreglumál – jafnvel þótt ég hefði atvinnu mína af því að selja hreintdýrapaté.
Það er óumdeilt að Alþingi hefur ekki staðið sig í stykkinu við að uppfæra lög til samræmis við almenna atvinnuhagsmuni á Íslandi. Þá má til dæmis vísa til þess skaða sem hvalveiðibrölt Kristjáns veldur á orðspori Íslands sem ferðamannalands og minni atvinnu annarra í kjölfar þess.
Þótt túlkun Umboðsmanns Alþingis sé mögulega lagatæknilega rétt, þá er hún siðferðislega röng.
1 comment