Ráða ekki við eigið kerfi

by 11MHz

5 comments
  1. Eftir langa setu Samfylkingarinnar er þetta ekki lengur Reykjavík heldur Ryanairvík.

    – Versta þjónusta sem hægt er að hugsa sér
    – Stendur ekki við samninga og eigin loforð
    – Reynir að rukka fólk til þess að bæta fyrir eigin mistök

    Eini munurinn er að stofnverð hjá Ryanair er mjög ódýrt en hjá Reykjavík er útsvarið mjög hátt.

  2. Gjörsamlega glötuð þjónusta, það var ekki tæmt hjá okkur nema einu sinni snemma í desember, svo ekkert fyrr en núna eftir jól í Janúar. Ég fer með 8 fulla svarta ruslapoka í sorpu, og á meðan ég er að sinna ÞEIRRA starfi að skila og flokka rusli þarf ég að sitja undir skömmum því ég var með svarta ruslapoka og einhver blaðspleðill flæktist með bylgju pappa. Þetta apparatt er orðið algjör brandari og þetta lið er svo merkilegt með sig að mig verður flökurt hvert sinn sem ég kem í sorpu.

  3. Ótrúlegt hvað þetta virðist glatað.

    Þar sem ég bý, er kvartað sáran yfir því að rusl sé ekki hirt í hverri viku, en þess má geta að bæði rusl og endurvinnsla er tekin hér aðra hvora viku, og stenst alltaf eins og stafur á bók. Get ekki ímyndað mér hvernig viðhorfið væri ef þetta væri eins lélegt og hjá Reykjavík.

  4. Er ekki bara best að mótmæla þessu með því að fara með pokana og skilja þá eftir hjá ráðhúsinu

  5. Er ekki æðislegt að það er verið að hækka skattana hjá okkur, rukka okkur meira, hækka gjöld… á sama tíma og allt dregst saman, þjónusta minnkar, og þrengist að buddunni hjá flest öllum?

    Að áður fyrr, þá hentum við almennt öllu sorpi í eina tunni, ekkert ves, alltaf tæmt, bara jollí.. en núna er búið að djöflast í okkur að flokka meira og betur, vera með endalaust tuð yfir því að við gerum þetta ekki nógu vel, geta svo ekki sjálf sinnt hreinsuninni almennilega (td vegna þess að tunnurnar pössuðu ekki á ruslabílana, lol), eru svo með stæla við fólk og *neita* að tæma því einhver er ekki nógu anskoti fullkomninn í því að flokka þetta 100% rétt, og eru SAMT að reyna að rukka okkur um miklu hærri gjöld ásamt því að ætla að rukka um umframgjöld, því að why the fuck not.

    Þetta gæti verið sketch í einhverri svartri kómedíu, og við myndum hlæja að því, því þetta hljómar svo absúrd og fáránlegt…
    Ísland í dag, best í heimi.

Leave a Reply