Tíu manna samkomutakmörkun á miðnætti

11 comments
  1. Best að halda áfram að þykjast eins og að skólastarf sé óskert og því stöðugleiki fyrir börn, sem eru samt raunverulega endalaust on/off í sóttkví eða einangrun, eða heima vegna manneklu í skólum vegna covid smita.

    Í leiðinni skulum við líka þykjast eins og að ákvörðunin um óbreytta reglugerð um skólahald í heimsfaraldri, sé í alvörunni byggð á umhyggju ríkisstjórnarinnar gagnvart börnum, en líka femínísku prinsippi!

    Afsakið á meðan ég æli

  2. i dunno any parties or gettogethers that have 10 people in them, 3 would be more realistic to freak out over

  3. Ef mér skjátlast ekki þá eru þetta mjög svipaðar takmarkanir og voru í gildi fyrir ári síðan þegar varla neinn var bólusettur. Nú er yfirgnæfandi meirihluti þjóðarinnar bólusettur. Hver er árangurinn af þessum bólusetningum?

    EDIT: Las þetta yfir aftur og sé að þetta getur mögulega litið soldið antivax út. Það var ekki ætlunin, ég er einfaldlega hundleiður á þessu eins og væntanlega fleiri eru.

Leave a Reply