Hefur einhver hér reynslu af því að versla í Costco? Borgar sig að greiða þetta 4.800 króna árgjald fyrir aðgang að búðinni? Annars vegar væri ég að spá í verð en hins vegar líka bara vöruúrval, hvort búðin veitir betra aðgengi að einhverjum tilteknum vöruflokkum en aðrar, ferskari ávexti, fleiri merki í rafvörum? Ég hef aldrei komið þarna inn, hef ekki hugmynd, hélt eiginlega að þetta hefði verið eitthvað hæp þegar búðin opnaði sem nú væri liðið hjá, en sá svo viðmælanda í meðfylgjandi viðtali, aðflutta frá New York, minnast í það að henni þyki Costco bæta aðeins upp króníska vöruskortinn á Íslandi. Sem eru mín orð, ekki hennar, en það er vissulega svolítið sjokk að flytja hingað frá stærri löndum upp á það að gera. Ýmsir kostir við Ísland en ef ég hefði val myndi ég líklega ekki hika lengi við að skipta norðurljósunum út fyrir alvöru, tafar- og tollalausa Amazon þjónustu. [https://www.businessinsider.in/thelife/news/i-moved-from-brooklyn-to-iceland-7-years-ago-it-may-be-tiny-but-its-cheaper-and-i-feel-safer-/articleshow/106597730.cms](https://www.businessinsider.in/thelife/news/i-moved-from-brooklyn-to-iceland-7-years-ago-it-may-be-tiny-but-its-cheaper-and-i-feel-safer-/articleshow/106597730.cms)

by mineralwatermostly

3 comments
  1. Er ekki sniðugt fyrir þig að skoða sem gestur áður en þú ákveður þig. Meirihluti íslendinga er ábyggilega með kort og þeir mega bjóða gestum með.
    Annars er þetta fastur liður hjá mér að skreppa. Alls ekki allt ódýrara en í öðrum búðum.
    Kom mér á óvart hvað ég versla mest þar, nefnilega föt á mig. Þau eru yfirleitt á mun betri verðum en annarsstaðar.

  2. Fyrir mig borgar árgjaldið sig í bensíni.

    Að versla þarna er frekar þreytt en allskonar sem fæst ekki annarsstaðar. Worth it fyrir mig.

  3. Fínt fyrir fólk sem getur nýtt sér stórar vörueiningar og magnkaup, til dæmis fyrir fjölskyldur og annað.
    Svolítið takmarkaðra ef þú ert neystlugrannur einstaklingur.
    En það er ýmislegt sem fylgir með, föt í góðu verði, dekk og umfelgun á bíla og margt annað.
    Fáðu að fara með einhverjum sem er með kort og skoðaðu.

Leave a Reply