Í einhvern tíma hef ég haldið því fram að borgin væri á hausnum og væri gjaldþrota, þar sem mjög margir voru að segja mér það. Mbl og vb hafa markvisst skrifað um gjaldþrot Reykjavíkurborgar og fjárhagsstaðan væri mjög þung. Ég hélt um langan tíma að þetta væri svona slæmt, þar til ég fór aðeins að rannsaka þetta sjálfur og skoða fjárhagsstöðu Reykjavíkurborgar. Mér sýnist að borgin hafi staðið sig nokkuð vel fjárhagslega fram að covid samkvæmt þessu línuriti og ekki er að sjá neitt gjaldþrot. Ótrúlegt hvað áróður getur haft áhrif á mann, kannski ekki furða að PISA-könnunin fyrir Ísland er áfall fyrir okkur. Það vantar smá gagnrýna hugsun.

by numix90

5 comments
  1. Fallegt rit, hvar fannstu þetta? Hvað þýða þessar súlur? Hvaðan komu gögnin?

  2. Það er bara ákveðin pólitísk taktík, sérstaklega Sjálfstæðisflokksins, að endurtaka hluti þangað til fólk fer að trúa þeim.

    Staða borgarinnar er bara ágæt, gæti kannski verið betri, en það er rugl að þetta sé eitthvað nærri gjaldþroti.

    En fólk hefur ekki haft mikinn áhuga á að heyra það og það hefur ekki verið vinsælt að taka sér stöðu með borginni upp á síðkastið.

    Sem er ákveðinn áróðurssigur Sjálfstæðisflokksins.

  3. Ef borginni gengur svona vel fjárhagslega, af hverju vildi enginn kaupa skuldabréfin sem þeir buðu út yfir markaðsvöxtum?

    Vilja fjárfestar ekki græða pening? Það ætti að vera sjálfsagður gróði fyrst þetta er svona vel rekið.

  4. held að Ríkið og öll sveitarfélög hafi tapað gríðarlega á covid og séu enn að moka sig upp þar svo já áróður

  5. Mæli með því að fólk kíki líka aftur í tímann og skoði hvernig rekstur borgarinnar var í þann óratíma þegar Sjálfstæðisflokkurinn bókstaflega átti hana. Þegar Davíð sveif úr borgarstjórastólnum yfir í landspólitíkina var hann nánast búinn að gera borgina gjaldþrota og gríðarlega mikilvægar eignir(t.d hlutur í Landsvirkjun) voru seldar á slikk. Ríkið þurfti að kaupa risastórt skuldabréf af borginni til að redda þessu.

Leave a Reply