“Bjarni heiðraður á Bessa­stöðum”

by Voxanity

13 comments
  1. >”Viljinn greindi fyrst frá en engar tilkynningar hafa borist vegna orðuveitingarinnar.”

    lol

  2. Bara eðlilegt framhald af tilefnislausum stólaskiptum í embættinu

  3. Sjálfstæðismenn hræddir um að þeir fái ekki að velja forseta aftur í næstu kosningunum og eru að taka út allt sem þeir geta.

  4. Væntanlega er einhver nefnd sem ákveður þetta, ekki Guðni. Hverjir eru í henni, eða hver ákveður þetta?

  5. Ætla bara að tilla mér hérna niður með poppkorn og fylgjast með þessum þræði, ætti að vera siðmannlegar umræður 🍿

  6. Ókei ég veit það er einhver orðunefnd og eitthvað en ég ætla að kjósa að trúa því að Guðni sé, vitandi að hann sé að fara að hætta, að trölla yfir sig. Þetta er eiginlega of fyndið.

  7. Allir þeir sem hafa verið forsætisráðherra fá boð um þetta. Þetta er hefð.
    Katrín og Jóhanna afþökkuðu þessa orðu.

  8. Bara enhver fálkaorða. Ekkert til að vera reiður yfir.

  9. Þessar orður eru í áskrift fyrir alla sem hafa verið forsætisráðherra og eða jafn mikið við völd og Bjarni og fullkomlega eðlilegt að hann fái þessa orðu. Meira að segja gerpið hann Sigmundur Davíð fékk þessa orðu, svo ómerkileg er hún. Þú færð svona orðu fyrir að komast til valda, ekki fyrir að vera góður strákur .

    Það segir bara allt sem segir um þennan mann að orðan hafi verið gefin í hljóði á föstudegi fyrir jól, svo óvinsæll er hann utan garðabæjar og seltjarnarness.

    og hvaða forseta heldur fólk að við höfum haft seinustu 8 árin? ég veit ekki betur en hann hafi komið fram sem ópólitískur já maður allan sinn feril og gert einmitt það fyrir utan eitt skipti þegar Sigmundur Davíð reyndi eitthvað sniðugt.

  10. Allt svona hjálpar til með að vekja fólk. Hann var verðlaunaður fyrir að hafa fæðst í rétt ætt.

Leave a Reply