Daginn,

Í lögum um [Tekjuskatt og eignarskatt](https://www.althingi.is/altext/lagasofn/121a/1981075.html) kemur fram í grein 23:

***23. gr.*** *Tap á sölu eigna, sem ekki eru notaðar í atvinnurekstri, er ekki heimilt að draga frá skattskyldum tekjum. Áður en skattskyldur hagnaður af sölu eigna er ákveðinn má skattaðili þó draga frá heildarhagnaðinum það tap sem hann kann að hafa orðið fyrir vegna sölu sams konar eigna á sama ári.*

Hlutabréf í óskyldum hlutafélögum eru talin “samskonar eignir” þannig að ef tap verður af sölu hlutabréfa í félagi A sem er hugbúnaðarfyrirtæki en hagnaður af sölu hlutabréfa í félagi B sem framleiðir reykta loðnu þá er greiddur skattur af summunni á hagnaði A og B – með öðrum orðum, tapið dregst frá hagnaði áður en það er reiknað til skatts.

Sama á við um afleiðuviðskipti og framvirka samninga. Samningur um heimsmarkaðsverð á timbri sem fer í fokk dregst frá hagnaði við saming varðandi virði á ufsa sem gekk glimrandi vel.

Þetta eru taldar “samskonar eignir”.

Hins vegar ef seld eru bréf í verðbréfasjóði II og verðbréfasjóði III hjá viðskiptabanka eða fjármálafyrirtæki þá virðist sem ekki sé heimilt að nota tap í sjóði II á móti hagnaði í sjóði III.

**Getur einhver útskýrt hvernig dæmin tvö hér að undan teljast “samskonar eignir” en síðasta dæmið gerir það ekki?**

by Vitringar

2 comments
  1. Ég er ekki alveg 100% en ég held að eign í þessum sjóðum er skilgreint sem verðbréf. Hagnaður þar er skilgreindur sem vaxtahagnaður en ekki söluhagnaður (sjá 7.7).

    Um vaxtahagnað/tap gilda aðrar reglur því það þarf að flækja hluti.

    Í 3.10 er fjallað um möguleikan á að sækja um að fá að deaga vaxtatap frá fjármagnstekjum.

Leave a Reply