Heiða Björg spurði hvernig framsali á lóð Péturs í Skerjafirði var háttað


KristinnK

3 comments
  1. Það er mjög undarlegt að í opinberum gögnum Reykjavíkurborgar standi að borgarstjóri (Heiða Björg) hafi óskað eftir þessum upplýsingum um lóð Péturs, en Heiða Björg segi svo í Kastljósi að lögfræðingarnir hafi ,,alls ekki” verið að sinna þessu að hennar beiðni.

    Það virðist ætla að stefna í harða baráttu um fyrsta sæti á lista Samfylkingar í Reykjavík fyrir sveitastjórnarkosningar í vor.

  2. Samfylkingin ætlar að fá sér einn lóðabraskara og lygara sem leiðtoga fyrir Kristrúnu í borginni.

    Hann neitaði öllum tenglsum við fasteignafélag þegar Heimildin spurði hann út í félagið en sat í stjórn félagsins og sagði sig úr stjórn eftir að heimildin spurði.

    Kristrún er að umbreyta Samfylkingunni í Diet Sjálfstæðisflokk. Kannski fílar Fólk þá breytingu, hefur gengið vel hingað til.

    https://heimildin.is/grein/26020/borgin-segist-ekki-hafa-upplysingar-um-adilaskipti-thratt-fyrir-augljosa-solu-a-felagi/

    https://heimildin.is/grein/25983/sat-i-stjorn-og-thrysti-a-borgarstjora-en-sver-af-ser-hagsmuni/

  3. Einn óvinsælasti borgarstjóri í sögu Reykjavíkur keppir við aðila sem ansi fáir virðast hafa óskað eftir né hafa áhuga á í forystu Samfylkingarinnar í Reykjavík.

Leave a Reply