
"Flestum er að verða ljóst að aðild að Evrópusambandinu, ef viðunandi samningar nást, getur lagt grundvöll að varanlegri endurreisn Íslands, m.a. í peningamálum og varðandi orðspor og umsvif íslendinga á alþjóðavettvangi. Þessi vegferð mun væntanlega hefjast fyrir alvöru á vormánuðum, ef landsfundur Sjálfstæðisflokksins kemst að jákvæðri niðurstöðu um aðildarviðræður. Ef það verður ekki sé ég a.m.k. fyrir mér grýttari og lengri leið upp úr þeirri holu sem Ísland er komið í.“
Þessi orð birtust í grein á visir.is á gamlársdag 2008. Höfundurinn er þáverandi forstjóri 365 miðla, Ari Edwald. Ari er í dag oddviti Miðflokksins í Reykjavík, en Miðflokkurinn er sem kunnugt er hatrammur á móti aðild Íslands að Evrópusambandinu."
—
ButterscotchFancy912