
Hæhæ, ég skrifaði grein um árásir Viðskiptaráðs á Bjarg íbúðarfélag, Félagsbústaði og aðra innviði borgarinnar og vildi endilega deila henni með ykkur. Hún var skrifuð í hálfgerðum flýti, en þetta hefur legið þungt á mér allt frá því að Viðskiptaráð hóf árásir sínar á Bjarg og önnur leigufélög sem eru ekki rekin í hagnaðarskyni. Ég bjó líka til graf þar sem ég sýni algjört aðgerðaleysi Kópavogs, næststærsta sveitarfélagsins. Kópavogur hefur ekki afhent Bjargi eina einustu lóð. 🙁 – Grafið er fyrir ofan – tek það fram að það vantar fleiri sveitarfélög inn í grafið.
Ég tek það fram að ég er ekki að ráðast á neinn persónulega í greininni minni, en það vekur óhug þegar sumir flokkar í borginni, sem tala máli Viðskiptaráðs, hafa verið að endurtaka tillögur þeirra. Við þurfum að standa vörð um innviði borgarinnar, hvort sem það eru Félagsbústaðir, Orkuveitan, bílastæðahúsin eða íbúðirnar sem Bjarg hefur byggt osfv.
Hér er greinin
—
onepiecemovement
1 comment
Viðskiptaráð er þrýstiafl ríkustu manna Íslands og XD