https://www.visir.is/g/20262832055d/mid-flokkurinn-nalgast-sam-fylkingu

Hvað er eiginlega í gangi á þessu skeri? Eru svona margir hræddir kallar hérna? Hjálpið mér að skylja aðdráttarafl Miðflokksins.




LadyMargareth

6 comments
  1. Enda ætla þeir að taka trump á þetta og lofa að MÍGA yfir kjósendur (Make Ísland Great Again).

  2. Að sjóða þetta niður í “Eru svona margir hræddir kallar hérna?” er kannski partur af vandamálinu.

  3. >Hvað er eiginlega í gangi á þessu skeri?

    Þetta eru mest bara hreyfingar innan hægrisins.

    Sjálfstæðisflokkurinn er í tilvistarkreppu.

    Viðreisn er búið að taka til sín frjálslyndu alþjóðasinnuðu bissness hægri mennina.

    Miðflokkurinn er að taka til sín íhaldsþjóðremburnar.

    Sjálfstæðisflokkurinn hefur enga sérstöðu, og virðist lifa einungis á skriðþunga.

    Ef þú tekur samanlagt fylgi VDM undanfarin ár þá er það undantekningalítið í rétt undir 50%.

    Mér finnst í raun stærra áhyggjuefni að m.v þessa könnun myndu 16% atkvæða falla niður dauð og ómerk, öll vinstra megin.

    >Eru svona margir hræddir kallar hérna? Hjálpið mér að skylja aðdráttarafl Miðflokksins.

    Langflestir nota bara internetið í gegnum Facebook, Instagram, Youtube, og Tiktok, og á öllum þessum síðum eru yfirþyrmandi íhalds-hægri bergmálshellar sem þú fellur inn í við minnsta feilspor. Þessir bergmálshellar mata þig svo á áróðri í þá áttina að allt sé að fara til fjandans og útlendingar ætli að taka börnin þín og tungumálið og þjóðina og…

  4. Svona að fara yfir þróun fylgist flokka í seinustu könnnum fæ ég þá tilfinningu að þetta sé aðalega fólk að beila á Viðreisn og Sjálfstæðisflokknum og segjast styðja miðflokkinn núna. Væntanlega fyrrum xD sem eru pirraðir útí slæma frammistöðu flokksins og þá xC sem eru pirraðir útí samstarfið við núverandi ríkisstjórn.

    Finnst þetta pínu “Trump” áhrif, fólk sem er frústrerað útí Gamaldags hægri flokkana, og vill e-ð róttækara fólk sem er meira í takt við bullið sem það kommentar á facebook. Fólkið sem segir að Danmörk hafi ekkert með Grænland að gera of það sé bara gaman af þessu töktum í Trump (Ekki skáldað dæmi)

  5. Fylgi hægri flokka á Íslandi hefur í sögulegu samhengi alltaf verið rúmlega 50% – Það er það í dag en dreifingin er að breytast.

Leave a Reply