

Mér finnst eiginlega ótrúlegt hvað þetta hefur fengið litla umræðu. Í fyrra vetur sleppir formaður Miðflokksins vetrarfundi ÖSE, þar sem verið var að ræða Úkraínu, fjölmiðlafrelsi, gervigreind og öryggi í Evrópu, til að fara á lokaða ráðstefnu í London með Jordan Peterson, Heritage Foundation og fólki sem er bókstaflega að skrifa handbækur um hvernig eigi að veikja lýðræði, ESB, mannréttindi og loftslagsaðgerðir. Þetta er ekki einhver saklaus fyrirlestur eða „forvitni“. Þetta er ákveðið hugmyndafræðilegt umhverfi, ákveðin tengsl og ákveðin forgangsröðun og hér er Simmi og miðflokkurinn að segja við erum partur af þessu. Og þegar sömu öfl eru farin að tala opinskátt um að "endurmóta“ Evrópu, veikja dómstóla og kalla loftslagsaðgerðir brjálæði, hoax, þá finnst mér alveg eðlilegt að spyrja, hvað er íslenskur þingmaður að sækja þangað? Og af hverju einmitt núna? Þetta snýst ekki um að hlusta á ólíkar skoðanir. Þetta snýst um hverjum þú velur að sitja við borð með. Ég vona að einhver fjölmiðill pikki þetta upp, því mér finnst þetta alls ekki líta sakleysislega út. Mér finnst þetta vera statement.
Edit: DV greindi frá því fyrir jól að forystumenn í Miðflokknum hefðu farið til Bandaríkjanna til að læra af MAGA-hreyfingunni hvernig hún vinnur kosningar. Ég veit líka að ungir sjálfstæðismenn gerðu það sama í fyrra vetur (þekki aðeins til).
Eitthvað segir mér að þessir flokkar munu fagna ef USA tekur yfir grænland
—
numix90
2 comments
ég hef voða litlar áhyggjur af áhrifum þessara máttvana kjötbollu á millilanda pólítík, þetta er bara larp
Nei það er ekki ótrúlegt, þessi ÖSE kalda stríðs stofnun er barn síns tíma og er að berjast við að halda sér á lífi og stríðið í Úkraínu gerir þessa stofnun óstarfhæfa þar sem Rússar eiga fulltrúa þarna. Það mætti notabene enginn frá ESB á þessa ÖSE ráðstefnu, Brussel mafían lét bara sendifulltrúa mæta fyrir sig.