
Eftir Ísjakaþráðinn fór ég aðeins að hugsa og melta svolítið um Íslenska fortíð.
Stóran hluta af minni bernsku var Davíð Oddson forsætisráðherra. Ég veitti því ekki mikla athygli þá en man eftir að hafa fundið skauplagið um Dabba Kóng mjög fyndið.
Hinsvegar hef ég lítið orðið var við í umræðunni nú á fullorðinsárum um hvernig hans tíð sem forsætisráðherra var.
Stutt leit á timarit.is leiddi í ljós frétt um að margir dómarar tilnefndir í hans tíð voru tengdir honum nánum böndum, og síðan man ég lauslega eftir miklum deilum um fjölmiðlafrumvarpið sem ÓRG neitaði að undirrita.
Þau ykkar sem eru eldri og muna þessa tíð betur en ég, hversu mikil alvara var á bak við Dabba Kóng lagið? Íslenskar vefheimildir eru frekar rýrar
Var Davíð einhverskonar proto-Orban Íslands? Eða meiri Thatcher týpa?
Þetta er náttúrulega gildishlaðin spurning og líklegt að ég fái gildishlaðin svör, en ég hef engin.
—
Icelander2000TM
2 comments
> “[skauplagið um Dabba Kóng](https://www.youtube.com/watch?v=F–h4PO8C7I)”
Það er stundum talað um hann eins og Tacher eða Reagan Íslands. Hann m.a. einkavæddi bankana um aldamótin. Svona boðberi nýfrjálshyggjunnar og einkavæðingarinnar a Íslandi. Einnig smá svona neocon, hann og Halldór Asgrimsson sáu m.a. til þess að við værum í hópi hinna viljugu þjóða fyrir innrásina í Írak 2003.
Ef þú þekkir eitthvað til Hannesar Hólmsteins að þa standa þeir nokkurn veginn fyrir sömu hlutina. Hannes kannski aðeins meiri Hugsjónamaður.
Mér hefur helst fundist a vinstri menn tali ennþá um hann. Svo þú getur kannski hlustað a samstöðina. Þó að þeirra teik sé auðvitað ansi hlutdrægt