Ég er að velta fyrir mér hvort við þurfum ekki að fara að hugsa öðruvísi um hvernig við tökum á glæpum ungmenna. Þurfum við að fara að setja á stofn unglingafangelsi fyrir ungmenni 14+? Þessir krakkar eiga ekki heima með öðrum börnum á stofnunum ríkisins eins og Stuðlum. Þarf ekki annað úrræði þar sem hægt er að vernda almenning en á sama tíma veita þessum börnum kraftmeiri úrræði eins og t.d. skipulagðan skóla (ekki fjarnám)með miklum stuðningi, þétta sálfræðiþjónustu og aðstoð í þeirri von að hægt sé að koma þeim úr þeim vítahring sem þau eru komin í. Ég er að tala um lokað úrræði.

https://www.visir.is/g/20262837712d/log-regla-fekk-send-mynd-bond-af-a-rasinni-fra-veg-far-endum




steina009

Leave a Reply