Pétur fer á móti borgar­stjóra og vill fyrsta sætið í Reykja­vík – Vísir


Herramadur

9 comments
  1. > Pétur Marteinsson, rekstrarstjóri og fyrrverandi knattspyrnumaður, ætlar að gefa kost á sér í oddvitasæti Samfylkingarinnar í Reykjavík fyrir næstu borgarstjórnarkosningar. Þar mun hann fara á móti Heiðu Björg Hilmisdóttur, núverandi oddvita og borgarstjóra, sem hefur ein önnur gefið kost á sér í fyrsta sætið.

    > Pétur Hafliði Marteinsson er fyrrverandi atvinnumaður í knattspyrnu. Auk Íslands spilaði hann í Svíðþjóð, Noregi og Bretlandi. Hann rekur Kaffihús Vesturbæjar ásamt sjónvarpsmanninum Gísla Marteini Baldurssyni. Auk þess er hann markaðsstjóri hugbúnaðarfyrirtækisins OZ Sport.

    Ekki frábærir 24 tímar fyrir Borgarstjórann.

  2. Æi nei takk.

    Ég hef oft komist í tæri við hann í hverfinu og þannig. (Ekki of nákvæmar upplýsingar)

    Einar með XS í stað XB.

    Hrokafullur gaur

  3. Heyrði viðtal við hann hjá RÚV og sver að hann var næstum búinn að mismæla sig og segja Sjálfstæðisflokkur í stað Samfylkingar. Freudian slip?

    En annars fagna ég allri nýliðun hjá Samfó og ætla ekki að fella dóm fyrr en ég veit meira um hann.

  4. Ég óska eftir alvöru urbanískum flokki í Reykjavík með skýrar og ófeimnar áherslur á loftslagsmál, frjálslyndi, lýðræði og mannréttindi. Flokki sem skilur að borg er ekki bílastæði, heldur samfélag fólks.

    Flokki sem vill stíga mun stærri og sterkari skref í að stórbæta uppbyggingu hjóla og göngustíga ekki sem aukaatriði, heldur sem raunverulegan valkost. Flokki sem setur öryggi óvarinna vegfarenda í forgang, ekki sem slagorð, heldur í hönnun, forgangsröðun og fjárfestingum.
    Klárum að setja Sæbraut í stokk og Miklubraut í stokk, setjum fleiri stofnvegi í stokk eða göng þar sem það á við, færum umferðina þar undir jörðina, tengjum hverfi betur saman og endurheimtum stór svæði sem nú liggja undir mislæg gatnamót og umferðarmannvirki og byggjum þar. Útrýmum beygjuvösum; þetta er úrelt, bandarískt skipulag og stórhættulegt.
    Eflum Strætó enn meira, gefum honum fleiri sérakreinar og raunverulegt forgangskerfi á meðan við bíðum eftir Borgarlínu.

    Flokki sem þorir að tala skýrt um þéttingu, útskýra af hverju hún er nauðsynleg fyrir húsnæðisöryggi, loftslag og lífsgæði og hafna þessari síendurteknu mýtu um að dreifing og fleiri vegir leysi vandann. Dreifð byggð er ógeðslega dýr fyrir sveitarfélög, og borg virkar ekki sem skipulagsvald þegar hún er of dreifð, bútuð og slitin í sundur.
    Flokki sem þorir að anda í hálsmálið á íhaldinu, líka þegar það verður óþægilegt og flokki sem tekur ekki upp kjaftæði öfgahægrisins til að þóknast eða vera undirgefinn.

    Og plís: hætta við Sundabraut. Þetta er úrelt, bílamiðað skipulag frá níunda áratugnum sem mun bara auka umferð inn á höfuðborgarsvæðið, festa okkur enn fastar í gömul vandamál og draga athyglina frá raunverulegum lausnum. Setjum frekar það fjármagn í hættulega vegi úti á landi, aukum fjárfestingu í Borgarlínu og Strætó og eflum almenningssamgöngur á landsbyggðinni sem tengja hana betur við höfuðborgina. Og plís getum við byrjað að setja fjármagn í lest milli Keflavíkurflugvallar og Reykjavíkur?

    Endurhugsum húsnæðiskerfið frá grunni tökum það að hluta úr höndum markaðarins og meðhöndlum húsnæði sem grunninnviði samfélags og mannréttindi, ekki fjárfestingatæki fyrir fáa. Stækkum og styrkjum óhagnaðardrifin leigufélög. Þar þarf ríkið að taka mun meiri ábyrgð en það gerir í dag, eftir að stór hluti ábyrgðar á húsnæðismálum var færður yfir til sveitarfélaga frá tíunda áratugnum. Í dag er staðan orðin sú að ein stærsta tekjulind margra sveitarfélaga er sala lóða sem skapar rangar hvatar og ýtir undir hátt húsnæðisverð.

    Þetta væri win-win fyrir bæði landsbyggðina og höfuðborgarbúa.

    Ok rantið buið, fæ örugglega hellings downvote en þetta þarf samt að segja.

    Edit: Ég held að flestir séu sammála um vandamálið, en of fáir nenna eða þora að gera það sem þarf til að leysa það. Alvarleg slys á óvörðum vegfarendum eru orðin nánast daglegt brauð, en samt er skipulaginu eða bílnum nánast aldrei kennt um. Ábyrgðin er sífellt lögð á þann óvarða. Við verðum að snúa þessu við. Það er skipulagið og hraðinn sem valda þessum slysum ekki hvort einhver var „illa klæddur“, „ekki nógu vel merktur“ eða „ekki nógu vakandi“. Þetta snýst um bílinn, hraðann og hvernig borgin er hönnuð.

  5. Frekar mikið Freudian slip hjá honum að byrja að segja Sjálfstæðisflokkinn í stað Samfylkingar, og svo að koma með slagorð Sjalla úr síðustu kosningum: borg sem virkar.

    Finnst hann einmitt vera eins og Einar, fyrrum Sjalli sem ætlar að verða borgarstjóri en hefur ekkert verið inni í sveitarstjórnarmálum og veit ekkert hvað hann er að fara að gera.

  6. Kristrún Frostadóttir er ekki búin að hugsa þetta til enda – svona vægt til orða tekið.

    Samfylkingin er ekki Framsóknarflokkur með engan borgarfulltrúa, enga grasrót og engu að tapa, og þetta er ekki flokkur sem tekur því fagnandi að fá gamla sjalla til að leiða lista. Pétur hefur aldrei áður verið í alvöru framboði og heldur trúlega að þetta snúist um PR þegar þetta í rauninni snýst um smölun og Heiða borgarstjóri og Hrannar eiginmaður hennar actually kunna það, þó hún hafi ekkert endilega verið frábær borgarstjóri.

    Pétur gæti tapað fyrir Heiðu og þá kemur í ljós hvaða tök KF hefur á flokknum þegar winning streakið hennar er búið. Pétur gæti líka unnið Heiðu, en klikkað í stóru kosningabaráttunni. Ég hef enga sannfæringu fyrir því að hann sé sterkur frambjóðandi sem býr til mikið fylgi fyrir Samfylkinguna.

    Hvað ef Sanna nær að búa til sterkt framboð sameinaða vinstrimann sem nær til vinstrafólksins í xS sem studdi Heiðu í tapinu fyrir Pétri, OG Björg Magnúsdóttir leiðir viðreisn, með bæði meiri fjölmiðla og stjórnmálareynslu en Pétur og hefur þar að auki aktúal þekkingu á borgarmálum eftir að hafa verið aðstoðarmanneskja borgarstjóra? Hann þarf ekki að mismæla sig oft.

    Síðan er þetta borgarstjóragigg ekki gott gigg ef þú hefur enga pólitíska reynslu. Þú þarft að böðla saman 3-4 flokka meirihluta og halda honum saman og svo er þetta sveitarstjórn sem gengur út á lögbundin hlutverk og stjórnsýslu, og næsti borgarstjóri þarf að gera þetta með mörgum grænjöxlum með miklar væntingar. Jafnvel þó PM yrði borgarstjóri (sem er nokkuð langsótt), þá er þetta ekki umhverfi sem hentar vel fyrir einstakling sem hefur verið eigandi og framkvæmdastjóri í til þess að gera litlum fyrirtækjum.

    Nýlegt fordæmi þess að fá gamla íþróttakempu með mikla reynslu úr atvinnulífinu sem bæjarstjóra væri t.d. Geir Sveinsson í Hveragerði. Það reyndist ekki vel.

  7. Hvað er með alla þessa fótboltagaura að fara í pólitík??

Leave a Reply