
Ég veit að þetta er ekkert grafalvarlegt mál en mér þykir þetta svo leiðinleg þróun. Merkið á Smáralindinni finnst mér ömurlegt að sjá.
Blokkin mín var rauð en er nú grá. Ástæðan var sú að litríkari litir "þarfnast svo mikils viðhalds og verða ljótir fljótlega"
Það er ástæða fyrir því að við gefum börnum leikföng í æpandi litum og stundum þarf fullorðin heili líka smá litagleði.
—
assbite96
3 comments
Sammála því að okkur vantar lítríkara umhverfi. Fyndið við þetta viðtal að hefði myndavélinni verið snúið 180 gráður hefði mátt sjá eitt litríkasta hús borgarinnar sem er ný búið að mála, það var áður hvítt.
https://preview.redd.it/6w24zd35jbkg1.png?width=1732&format=png&auto=webp&s=3c747d50afa1134ad83b1fbc6a86d8f6cb62daee
Við fáum bara Google gleraugu og veljum liti á umhverfið.
Mér finnst þetta graf alvarlegt. Ég hef verið í herbergjunum að rífast yfir þessu. Allskonar rebrands þar sem logo verða flatari, brönd verða einlitari, útlit tvívíðara. Bæði í grafík og í raunheimum. Ég er að berjast fyrir frekara lita úrvali, bognari línum, fallegra umhverfi og svarið er alltaf það nákvæmlega það sama: fólkið vill þetta.
Og það er alveg satt. Bílar eru einlitari í dag en fyrir 20 árum. Það er val hvers einstaklings. Bílaframleiðendum er sama hvaða lit þeir spreyja á, þeir vilja bara lit sem selst. Sjáið þetta graf hér fyrir neðan. Þetta er ekki vondi kapítalistinn að neyða litlausan heim yfir okkur. Þetta erum “við” að velja það.
https://preview.redd.it/jhp3e8vrkbkg1.jpeg?width=1920&format=pjpg&auto=webp&s=38650480a07b7b300c122d249ec9ab5b4b984615