https://www.dv.is/frettir/2026/3/20/akureyringur-sem-gekk-vid-haekju-atti-ser-einskis-ills-von-thar-til-logreglan-mannavillt/

>Í bréfi lögreglunnar á Norðurlandi eystra til nefndar um eftirlit með lögreglu kemur fram að útskýrt hafi verið fyrir manninum af hverju afskiptin af honum hafi átt sér stað, hann hafi þegar og ítrekað verið beðinn afsökunar á því að farið hafi verið mannavillt,

Hvaða andskotans máli skiptir hvort þeir hafi beðist afsökunar og útskýrt að þeir hafi farið mannavillt? Skaðinn er þegar skeður, og þeir eiga að taka ábyrgð á sínum mistökum. Það er er virkilega slæmt fordæmi ef við leyfum lögreglumönnum að sleppa við refsingu "afþví þeir fóru mannavillt". Hvort sem þetta hafi verið heiðarleg mistök eða ekki, þá breytir það því ekki að þessi dómur hefur fordæmisgildi þegar fólk kærir lögreglumenn fyrir misbeitingu valds seinna. Ef þessir sleppa við ábyrgð afþví þeir fóru mannavillt þá getur hvaða lögreglumaður sem er bara haldið því sama fram ef hann fær á sig ákæru fyrir valdníðslu.

>honum boðið far heim til sín en einnig hafi honum verið boðið að fara á sjúkrahús að láta líta á sig sem hann hafi ekki þáð. Í lögregluskýrslu komi m.a. fram að hann hafi ekki viljað fara á sjúkrahúsið til að tryggja að fótur hans hafi ekki orðið fyrir frekari skaða.

Já afþví að fólk í adrenalín sjokki eftir líkamsárás er svo líklegt til þess að taka rökréttar of skynsamar ákvarðanir, einmitt.




Armadillo_Prudent

Leave a Reply