Í fyrsta lagi:

Það er þreytt að heyra þessa ábyrgðarfyrringu hjá gráðugum gæjum sem kynda undir verðbólgu með því að hækka kostnað þjónustu og vöruverð margfalt hærra en nokkur launahækkun eða hráefniskostnaður sem hefur átt sér stað á gólfinu þeirra.
Hvað með að sýna smá ábyrgð og taka á sig lægðirnar sem eru óumflýjanlegur hluti þess að reka bisness í stað þess að velta öllu í verðlagið og skella skuld og ábyrgð á viðskiptavini sína og starfsfólk?

Ég vil sjá þessa plebba sýna tölurnar sem þeir tala um til að réttlæta þessar hækkanir í stað þess að fara í næsta nýfrjálshyggju fjölmiðil með krókódílatárin bölvansi almennu launafólki sem skapar raunverulegu verðmætin.

Í öðru lagi:
Er þetta ekki gæjinn sem deildi meðal annars nasistaáróðri og menningarstríðsbulli?

https://heimildin.is/grein/25617/deildi-efni-til-varnar-hitler-a-tiktok/




timabundin

5 comments
  1. Íslenska leiðin:

    Þegar það er hallæri þá skal hækka verð afþví það kostar svo mikið að kaupa hráefni og reikninga

    Þegar það er góðæri þá skal hækka verð afþví allir eiga svo mikla peninga

    Undir ENGUM kringumstæðum skal lækka verð

  2. Bæjarins Bestu meiga þá bara fokka sér.

    Það er frekar augljóst af hverju fólk þarf mjög há laun ef að fólk getur raunverulega réttlætt þetta verð á eina afgreidda pulsu. Það er náttúrulega ekki réttlætanlegt þar sem ég get enn keypt pylsur og pylsubrauð sjálfur – þetta er bara græðgi kaupmanna að búa til verðbólgu fyrir okkur öll og auðvitað kenna þessir kaupmenn öllu öðru en sjálfum sér um.

    Það vill einmitt svo skemmtilega til að eigandi Bæjarins Bestu er byrjaður að vera með fasistaáróður samhliða þessari öfgagræðgi svo – Bæjarins Bestu meiga þá bara fokka sér og ég mun skila þeim skilaboðum áleiðis til allra ferðamanna sem það vilja heyra.

Leave a Reply