Nú er ég ein af þessum opinberu starfsmönnum sem sjálfstæðismenn elska að hata og kem alveg af fjöllum.

Ég þurfti að gúggla hvað þessir inniskór eru, þeir virðast ekkert vera neitt svakalega dýrir, örugglega þægilegir. Mér er ekki stætt á að vera í lokuðum skóm vegna öryggissjónarmiða en ef ég gæti myndi ég örugglega fá mér svona sandala.

Ég þarf að spyrja, hvað var manneskjan að meina? Þurfum við sem ríkisstarfsmenn að þjást á fótunum út af vinnu okkar? Ég geri mér grein fyrir að hún var að níða okkur en ég hreinlega fatta ekki samlíkinguna.

Edit: Svo virðist að fólk sé ekki jafn samdauna og ég hvað varðar fréttir svo smá samhengi: https://www.dv.is/frettir/2026/03/23/verulega-osatt-vid-litillaekkandi-ordraedu-diljar-mistar-minna-oryggi-fyrir-folkid-sem-ber-uppi-samfelagid/




fenrisulfur

4 comments
  1. Meiningin er að þú ert kominn í þægilega inniskó af því þú ert búinn að “búa um þig”. Þetta er myndmál bæði fyrir það hvað það er erfitt að losna við opinbera starfsmenn en líka meinta gagnrýni hægrimanna að opinberir starfsmenn láti eins og þeir eigi sinn málaflokk og séu gjörn að taka alls kyns ákvarðanir sem hægrimenn væru helst til í að stjórnsýslan væri ekkert að skipta sér af.

  2. Þessum forréttinda pésa finnst opinberir starfsmenn hallærislegir lúðar.

    Þessi aumingi gefur aldrei unnið handtak á ævinni btw.

Leave a Reply