Svarar til saka – Stofnaði barni í lífshættu með því að skilja hlaupbangsa eftir á glámbekk


birkir

1 comment
  1. >Einstaklingur hefur verið ákærður fyrir hegningarlagabrot, fíkniefnalagabrot og brot gegn barnaverndarlögum með því að hafa árið 2023 stofnað lífi og heilsu barns í hættu með því að skilja eftir hlaupbangsa með kannabis sem barnið komst í. Barnið var flutt með forgangsakstri sjúkrabifreiðar á Landspítalann og lagt inn á gjörgæslu með eitrun.
    >
    >Í nafnhreinsaðri ákæru sem DV hefur undir höndum er viðkomandi ákærður fyrir brot gegn 4. mgr. 220 gr. almennra hegningarlaga og 98. gr. barnaverndarlaga:
    >
    >>Hættubrot og brot gegn barnaverndarlögum, með því að stofna á ófyrirleitinn hátt lífi og heilsu drengsins A, kt. [ ], í augljósan háska og vanrækja umönnun hans þannig að lífi hans og heilsu hans var hætta búin, laugardaginn [ ], með því að hafa að [ ], skilið eftir hlaupabangsa sem innihélt kannabis (THC gúmmibangsa) sem drengurinn komst í og innbyrti tvo til þrjá þeirra, með þeim afleiðingum aðhann missti meðvitund og hlaut eitrun og var síðan fluttur með forgangi í sjúkrabifreið frá [ ] á Landspítalann, þar sem hann var lagður inn á gjörgæslu vegna alvarlegrar meðvitundarskerðingar en hann svaraði einungis verulega sársaukafullu áreiti og var með merki eitrunar en þvagsýni hans gaf til kynna að hann væri undir áhrifum kannabis.

Leave a Reply