>Hann sagðist hafa játað því í yfirheyrslu hjá lögreglu að hafa verið staddur í húsi þar sem lögregla hafi talið vændi fara fram. Hann hefði þó alls ekki verið þar í þeim tilgangi heldur mætt þangað í partý með fólki sem sótti ársþing Alþýðusambands Íslands þessa helgi. Sambandið heldur ársþing á tveggja ára fresti.
>
>„Ég fór í þetta hús og var kallaður til yfirheyrslu vegna þess,“ sagði Guðbrandur. Hann muni þó ekki hvaða hús þetta var eða hvaða fólk sótti partýið.
og
>Guðbrandur segir í skriflegri yfirlýsingu sem hann sendi Vísi seint í gærkvöldi, eftir að blaðamaður spurði hann út í málið, **hafa haft samband við konu með vændiskaup í huga**. Honum hafi hins vegar snúist hugur þegar á staðinn var komið en samkvæmt heimildum fréttastofu var um fjölbýlishús á höfuðborgarsvæðinu að ræða.
hvers konar partý var þetta hjá Alþýðusambandi Íslands ???
Er þetta ekki næs?
Hann sagði bara af sér. Enginn hroki, engin útskýring að engin lög hafi verið brotin því hann var aldrei sóttur til saka fyrir athæfið og engin ástæða til að gera neitt… hann er bara hættur.
*Um mikilvæg störf ríkisstjórnarinnar verður að ríkja algjört traust og friður og á það líka við um þingmenn hennar. Ég hef því ákveðið að segja af mér þingmennsku samstundis og hef látið forystu flokksins vita af því.*
2 comments

Svona á þetta að vera.