Íslendingar rífast við fólk frá Venesúela um ástandið


Skrattinn

6 comments
  1. Auðvitað, við þekkjum stöðuna þeirra muuuuun betur en þau /s

  2. Vegna þess við eigum ekki að segja Venesúelabúum hvernig þeim á að líða eða hvað þeim á að finnast. Við þekkjum ekki aðstæður nógu vel þarna eða hvað hefur gengið á. Það versta sem við gerum er að tala yfir þá og þykjast þekkja ástandið betur og vita betur. Og tala yfir þeirra raddir.

    Instagram hjá mér er fullt af folki sem hefur litla þekkingu á ástandinu að tjá sig eins og það viti allt og  geti sagt oðrum fyrir. Ég þurfti að skrolla til að finna fólk frá Venesúela sem tjáði sig og breyta algoritmanum og lærði talsvert á því. Lifð reynsla skiptir máli, ekki fína gráðan.

    Ekki alveg eins en Íslendingar verða alltaf pirraðir ef Danir telja sig vita meira um hvernig var fyrir Ísland að vera undir Danmörku en Íslendingar. Afhverju ættum við þá að vita meira rn fólk frá Venesúela um hvernig er að bua undir harðstjórn.

  3. Geta báðar hliðar ekki verið réttar ?

    Það er frábært fyrir Venesúela að Maduro sé farinn.
    Það er hræðinlegt fyrir alþjóðasamfélagið að alþjóðalögum sé og hafi ekki verið fylgt. Það ýtir undir spurninguna hvert Bandaríkin snúi sér næst.

  4. Ég skil það vel að Veneúselabúar upplifi verðskuldaða þórðargleði við að Maduro sé rænt.

    Ég held samt að það sé það eina sem þau fá út úr þessu. Þórðargleði. Ástandið í Venesúela er ekki að fara að batna við að forsetanum sé rænt í skjóli nætur. Maduro er einn maður. Hann ber ekki persónulega ábyrgð á öllu sem illa hefur farið í Venesúela. Sami flokkur er við völd, og sama fólkið er við völd (nema Maduro).

    Ef eitthvað er er ástandið að fara að versna. Ég get ekki nefnt eitt einasta dæmi um land þar sem lífsskilyrði hafa batnað við að Bandaríkin geri loftárásir.

    Og algerlega burtséð frá því hvaða áhrif þetta mun hafa á Venesúela, þá er það að Bandaríkin hegði sér svona eru geigvænlegar fréttir fyrir okkur hin sem erum innan áhrifasvæðis þeirra.

  5. Maður getur verið nokkuð sáttur með að Maduro sé ekki lengur forseti og á sama tíma verið órólegur með framhaldið.
    Ég hef smá tengingu við fólk sem flúði Venesúela og samgleðst með þeim en á sama tíma þá man ég gleðina hjá Írökum 2003 og hörmungarnar sem fylgdu.
    Vonandi gengur þetta vel.

Leave a Reply