​Finnur Oddsson, forstjóri Haga, var á Bylgjunni um daginn að kynna takk krónur. Það var skondið að hlusta á hann segja “…þetta er í rauninni bara kjör sem við erum að bjóða upp á, sem að hérna er kannski ekkert endilega auðvelt að gera í matvöruverslun vegna þess að þar er framlegð frekar rýr…”

Síðasta sumar var fyrirsögn á Heimildinni "Sam­hliða 6% hækk­un mat­vöru­verðs á einu ári eykst fram­legð Haga, sem reka Bón­us, Hag­kaup og Olís, um 22% milli ára." Þetta var hagnaður upp á 11,6 milljarða. https://heimildin.is/grein/24828/hagar-hagnast-meira-og-segja-medbyr-i-rekstri-verslana/

Ég fór í verslunarferð í Bónus, verslaði fyrir rúmlega 10 þúsund krónur og auðkenndi mig með takk, hugsaði með mér að það væri nú frábært að fá pening til baka þegar maður verslar. Ég labbaði út með 10 takk krónur, takk fyrir! Mér reiknast til að ég þurfi bara að fara í um þúsund svona verslunarferðir til að fá næstu alveg fría!




neytandinn

Leave a Reply