Er eitthvað í gangi í samfylkingunni?

Þetta er núna önnur fréttin sem ég sé um að einhver hægri maður sé allt í einu skráður í samfylkinguna. Og sure þetta er "Lífið" frétt um viðbröðg Gillz við mannlífsgrein en ég nenni ekki að finna hina fréttina sem ég sá. Mér finnst eitthvað weird í gangi. Einhver sem þekkir til? Ég er bara mjög lauslega búin að fylgjast með þessum fréttaflutningi…

Hér er það sem heilinn á mér er að púsla saman:

– Randó fótboltagaur sem áður hafi boðið sig fram fyrir sjálfstæðisflokkinn í einhverju aftarlegu sæti allt í einu ætlar að verða oddviti samfó eftir nkl ekkert stjórnmálastarf

— virðist í þokkabót hafa verið í lóðabraski

– Það kom líka frétt um að mikil aukning hefði verið í skráningar í samfylkinguna fyrir þetta oddvitakjör

— og svo nokkrar fréttir um "skrítið" fólk á skrá i flokknum, fólk sem maður hefði sjaldan haldið að væri á þeirri bylgjulengd

– Sjálfstæðisflokkurinn er með 30% i skoðunarkönnunum en aðrir hægrir flokkar myndu ekki ná að draga þau yfir í meirihluta og þau hafa skemmt alla möguleika á samstarfi við aðra flokka i borginni í gegnum tíðina

— margar fréttir i gegnum árin um að enginn vilji vinna með sjalfstæðisflokknum

Er ég ekki að fylgjast nógu vel með eða eru aðrir að sjá actual samsæri hérna að koma einhverri puppet fyrir í samfylkingunni sem á svo að sjá til þess að sjálfstæðisflokkurinn komist til valda í borginni? Get ímyndað mér að óhagnaðardrifin leigufélög og felagshúsnæðo ógni svolítið húsnæðafjárfestakóngunum sem eru að græða á tá og fingri á þessum galna húsnæðismarkaði…

Einhver til í að talk me off the edge hér eða eruði sammála?




Here_2observe

3 comments
  1. Finnst eins og þetta lykti af því að Kristrún sé að koma einhverjum nær sér í pólitík til að leiða Samfylkinguna í Reykjavík. Efast um að þetta sé eitthvað meira samsæri en það.

    Tilfinning mín er að undir yfirborðinu sé töluverð barátta um hvað Samfylkingin stendur fyrir, Kristrún er að færa flokkinn töluvert mikið til hægri en fólk eins og Heiða, Dagur og fleiri sem hafa verið partur af Samfylkingunni eru ósátt við hve mikið flokkurinn er að færast frá fyrrum gildum sínum.

  2. Lol, Kristrún er bara að koma sínum manni inn í borgarstjórastólinn.

    Annars er mannlíf mjög traustur miðill, allt 100% satt sem kemur frá þeim /s

  3. fjöldi Pírata á prófskrá jókst um allavega 43% í síðasta prófkjöri þeirra, það voru vel yfir þúsund nýskráningar þar og Samfylkingin er talsvert stærri flokkur en Píratar, þetta er bara eins og gengur og gerist á Íslandi sýnist mér

    geturðu samt útskýrt fyrir mér af hverju hægrisinnaður einstaklingur myndi ekki skrá sig í Samfylkinguna fyrir þetta prófkjör? heldurðu að hægrisinnaður einstaklingur gæti ekki fengið heilmikið út úr því að kjósa í þessu prófkjöri?

Leave a Reply