„Við erum auðvitað öll sammála um markmiðið, við viljum standa með eldra fólki og öryrkjum. En þarna er verið að breyta hlutverki bóta úr því að tryggja lágmarksframfærslu, sem hefur verið hlutverk bótakerfisins, yfir í að bótakerfið eigi að fylgja meðallaunum.“

Við erum að tala um fólk sem býr oft í sárri fátækt. „Lágmarksframfærsla“ er bara tæknilegt orð yfir fátækt. Þessi kona er fædd inn í svo ríka fjölskyldu að hún hefur aldrei þurft að vinna dag á ævinni umfram eigin geðþótta. Það er hægt að fara aðrar leiðir til að örva atvinnuþátttöku en stundum er bara enga atvinnu að hafa fyrir suma. Það myndu áreiðanlega sparast einhverjir milljarðar ef meðferðarúrræði væru til fyrir ýmsa málaflokka í stað þess að bíða uns einstaklingar eru orðnir varanlega óvinnufærir.




StefanOrvarSigmundss

Leave a Reply